26.4.2008 | 21:38
Hmm, lítur ekki vel út.
Hmm, heyrði í fréttum talað við Helgu Kristínu sviðstjóra á Landspítala. Ég er ekki svo viss um að þeir fáu hjúkrunar- og geislafræðingar sem eftir eru geti sinnt neyðaráætluninni í langan tíma, sérstaklega í ljósi þess að fólk slasar sig líka yfir blánóttina. Ég hef nefnilega heimildir um það að hræðilega fáir geislafræðingar verða við störf eftir 1.maí og ég er hrædd um að staðan hjá hjúkrunarfræðingunum sé sú sama. Þannig að ég vil bara segja við stjórnendur spítalans - GANGI YKKUR VEL- að halda uppi sólahrings-neyðarvakt.
Foreldrar, passið svo börnin ykkar á trampólínunum.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.